Fyrirtækin MEST ehf. og Súperbygg ehf. sameinast í dag undir merkjum MEST. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að með sameiningunni verði til eitt öflugasta fyrirtæki landsins með vörur og þjónustu fyrir verktaka og fagaðila í byggingariðnaði og verklegum framkvæmdum og almennt framkvæmdafólk.

Eftir samrunann verður MEST með um sex milljarða króna ársveltu og um 250 starfsmenn. Viðskiptablaðið greindi frá samrunaáætlunum félaganna í síðustu viku.

Þórður Birgir Bogason, forstjóri MEST, segir að með sameiningunni náist fram hagræðing í rekstri og gríðarleg aukning í vöruúrvali sem efla muni þjónustu við viðskiptavini félagsins til muna.

"Sameinað félag er sterkasta alhliða félag á íslenskum byggingavörumarkaði en MEST býður nú sérsniðnar lausnir fyrir fagaðila, fyrirtæki og einstaklinga, allt frá fyrstu skóflustungu til fullkláraðs húss og lóðar.?

Pétur Hans Pétursson, áður framkvæmdastjóri Súperbygg og nú framkvæmdastjóri byggingasviðs MEST, segir að með sameiningunni verði til geysiöflugt fyrirtæki á markaði fyrir vörur og þjónustu tengda byggingariðnaði og verklegum framkvæmdum. "Neytendur hafa nú raunhæfan valkost í þessum efnum sem koma mun þeim til góða í hagstæðari kjörum.?

Eftir sameininguna rekur MEST nú verslanir á eftirtöldum stöðum: Bæjarflöt í Grafarvogi, á Malarhöfða í Reykjavík og Bæjarhrauni í Hafnarfirði þar sem m.a. er selt hráefni til innréttingaiðnaðarins. Unnið er að byggingu nýrrar 3.600 fm byggingavöruverslunar MEST í Norðlingaholti sem ráðgert er að opna í vetur. Ennfremur er fyrirhugað að reisa 2.000 fermetra verslunar- og þjónustuhúsnæði á Malarhöfða. MEST rekur einnig söluskrifstofur á Hringhellu í Hafnarfirði, á Reyðarfirði og Selfossi. Stefnt er að opnun fleiri útsölustaða á landsbyggðinni á næstu mánuðum.

MEST rekur fjórar steypustöðvar, eina helluverksmiðju og eina einingaverksmiðju auk þróunar-, gæða- og rannsóknadeildar. Auk almennra byggingavara selur MEST steypu-, járn-, múr- og timburvörur, glugga, stálgrindarhús og bílskúrshurðir, innveggi og kerfisloft, forsteyptar einingar og steypumót, rör og brunna, festingar og verkfæri, hellur og garðeiningar, forbeygt styrktarjárn auk ýmissa vinnuvéla, byggingakrana og tækja til bygginga- og lóðaframkvæmda. Aðalstöðvar MEST eru áfram á Malarhöfða 10.