Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,72% í dag og endaði í 1,815 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,43% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eimskipa, eða um 1,53% í viðskiptum sem hljóða upp á 751 milljón króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 233 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair, eða um 0,71% í 636 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group nemur þá 35,30 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Símans um 2,35% í 189 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Símans er þá 3,33 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Vodafone um 0,44% í 90 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 44,8 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,7 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 9,3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,8% í dag í 2,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 6,9 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 1 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 5,9 milljarða króna viðskiptum.