Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,84% í dag og endaði í 1785,71 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 5,04% frá áramótum.

Mest lækkaði gengi bréfa Reita fasteignafélags, eða um 2,21% í viðskiptum uppá 200 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 83,90 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Regins um 1,45% í viðskiptum uppá 35 milljónir króna, en verð hvers hlutar í félaginu er 22,05 krónur.

Mesta veltan var með bréf Icelandair Group upp á rúmlega milljarð króna en gengi hlutabréfa félagsins lækkaði um 1,21% og endaði það í 32,55 krónum á hlut.

Mesta hækkunin var hins vegar hjá HB Granda eða upp á 1,13% í 82,5 milljón króna viðskiptum, en einnig hækkaði gengi bréfa Össurar upp á 2,17% í einungis 5 milljón króna viðskiptum.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,6 milljarðar króna, og heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,8% í dag í 2,6 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3% í dag í 4,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 0 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,3% í 4,4 milljarða króna viðskiptum.