Heildarvelta í Kauphöllinni nam ríflega 2,8 milljörðum króna í dag. Velta með hlutabréf nam um 990 milljónum króna. Velta með skuldabréf nam hins vegar 1.818 milljónum.

Á hlutabréfamarkaði voru mest viðskipti með bréf í Icelandair Group eða 215 milljóna króna viðskipti. Bréf í fyrirtækinu hækkuðu um 0,95% í þessum viðskiptum. Næst mest viðskipti voru með bréf í Marel en þau námu 190 milljónum króna. Gengi bréfanna stóð í stað. Tæplega 178 milljóna viðskipti voru með bréf í VÍS og lækkuðu bréfin um 0,84%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,03% og stóð í 1.377,23 stigum í lok dags.

Á skuldabréfamarkaði nam velta með óverðtryggð bréf tæpum einum milljarði króna og um 700 milljóna velta var með verðtryggð bréf.