Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,54% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.364,8 stigum. Gengi bréfa Vodafone hækkaði um 0,54% og Regins um 0,21%.

Bréf Eimskipafélags Íslands lækkuðu um 1,67%, Marels um 0,70% og Icelandair um 0,65%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 1.121 milljón króna í dag og þar af nam velta viðskipta með bréf Icelandair 404 milljónum.