Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 3,4 milljarða króna viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 1,8 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,2% í 0,6 milljarða króna viðskiptum.

Hlutabréfavelta nam um 66 milljónum króna í Kauphöll Íslands í dag. Nær eingöngu var verslað með bréf Marels, sem birti ársfjórðungsuppgjör sitt í dag. Nærri 64 milljóna viðskipti voru með bréf félagsins, sem hækkuðu um 1,17%. Úrvalsvísitalan OMXI6 hækkaði um 0,3% í dag. Hún hefur hækkað um 7,2% frá áramótum.