Skráð atvinnuleysi í desember sl. var 4,8% samkvæmt tölum sem Vinnumálastofnun birti í dag.

Það þýðir að atvinnulausir voru að meðaltali 7.902 í desember, sem er 45% aukning frá nóvembermánuði. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið frá því í janúar árið 1997.

Á sama tíma  árið 2007 (þ.e.a.s í desember)var atvinnuleysi 0,8%.

Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum 9,7% en minnst á Vestfjörðum 1%. Atvinnuleysi eykst um 46% á höfuðborgarsvæðinu og um 44% á landsbyggðinni.

Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar.

Þar segir einnig:

„Gert er ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í mörgum atvinnugreinum einkum verslun, mannvirkjagerð  og þjónustugreinum á næstu mánuðum auk þess sem mörg minni fyrirtæki eiga við mikinn fjárhagsvanda að stríða m.a. vegna mikils fjármagnskostnaðar. Erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt er að atvinnuleysið í janúar 2009 muni aukast verulega og verða á bilinu 6,4% - 6,9%.“

Um 10.800 manns eru nú skráðir atvinnulausir, samkvæmt vef stofnunarinnar.