Eins og flestir hafa orðið varir við, þá hefur íbúðaverð hækkað hratt á síðastliðnum misserum. Íbúðaverð á landinu öllu hækkaði um 1,8% í febrúar frá fyrri mánuði og er það því sjöundi mánuðurinn í röð þar sem verðhækkun er yfir einu prósenti milli mánaða, en á því stutta tímabili hefur húsnæðisverð hækkað um heil 12,7%. Þetta bendir Greining Íslandsbanka á í nýrri frétt sinni um íbúðaverð.

„Hækkunina í febrúar má bæði rekja til mikillar hækkunar á verði íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þó er íbúðaverð á landsbyggðinni að hækka nokkuð hraðar um þessar mundir. Nam hækkunin þar nú í febrúar 2,4% samanborið við 1,6% hækkun á íbúðum í fjölbýli og 1,4% hækkun á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu. Hefur íbúðaverð á landsbyggðinni verið að hækka nokkuð umfram íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu undanfarna mánuði,“ er meðal annars tekið fram í greiningunni.

Íbúðarverð hefur hækkað um 16% á síðastliðnum tólf mánuðum, en hraðari hefur hækkunartaktur íbúðarverðs ekki verið síðan í upphafi árs 2008. „Hefur verið að bæta nokkuð hratt í hækkunartaktinn síðan í maí í fyrra þegar hann mældist 6,5%.

Þar sem verðbólgan hefur verið lítil og nokkuð stöðug undanfarið hefur hraðari taktur í verðhækkun íbúðarhúsnæðis komið fram í samsvarandi hraðari raunhækkun íbúðaverðs. Yfir síðustu tólf mánuði hefur raunverð íbúðarhúsnæðis hækkað um 13,8% sem er mesta raunverðshækkun íbúðarhúsnæðis sem mælst hefur síðan í apríl 2006. Er raunverð íbúða orðið hátt sögulega séð og nálægt því sem það fór hæðst í síðustu uppsveiflu,“ er tekið fram í greiningunni.

Greining Íslandsbanka segir að íbúðamarkaðurinn hafi nú mörg einkenni þenslu. Fyrir utan hækkun á íbúðarverði hefur heildarfjöldi íbúða á söluskrá ekki verið minni svo langt sem gögn Þjóðskrár Íslands ná. Það voru 920 íbúðir auglýstar til sölu undir lok síðasta árs, en þeim hafði fækkað um 35% frá lokum árs 2015. Einnig mældist meðalsölutími íbúða 1,6 mánuðir í lok síðastliðins árs sem er lægsti meðalsölutími sem mælst hefur síðan mælingar á þeim þætti hófust í ágúst 2006, er tekið fram í greiningu Íslandsbanka.