Sala á jólabjór hefst í verslunum ÁTVR þann 14. nóvember. Að þessu sinni verða 78 tegundir jólabjórs í boði og hefur úrvalið aldrei verið meira. Í fyrra voru um 60 tegundir á boðstólum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Mesta úrvalið af jólabjór verður í Vínbúðinni í Skútuvogi. Þar verða allar tegundirnar til sölu en í öðrum vínbúðum verða um 60 tegundir til sölu. Nöfn jólabjóranna eru oft frumleg. Að þessu sinni er vona á jólabjórnum Hóhóhólísjitt í verslanir, sem og Jólaálfinum.