Horfur eru á að landsframleiðsla dragist saman um 7,6% í ár sem yrði einn mesti samdráttur á síðustu 100 árum að því er fram kemur í nýrri þjóðhaggspá Hagstofu Íslands, sem er hluti af ritröðinni Hagtíðindum. Spáin tekur til áranna 2020 til 2026.

Áhrif kórónaveirufaraldursins (Covid-19) á hagkerfið hafa verið víðtæk eins og alþjóð veit, og ferðaþjónusta hefur nánast lamast og atvinnuleysi aukist til muna. Hins vegar gerir spáin ráð fyrir bata á næsta ári og að landsframleiðsla aukist um 3,9% á milli ára. Áætlað er að þjóðarútgjöld dragist saman um 3,6% í ár en að viðsnúningur verði á næsta ári og þau aukist um 3,9%.

Gert er ráð fyrir að einkaneysla dragist saman um 5% í ár og að atvinnuleysi verði að jafnaði 7,8%. Á næsta ári er spáð 4,2% aukningu einkaneyslu og að atvinnuleysi verði 6,8%. Útlit er fyrir að útflutningur dragist saman um 30% í ár en búist er við bata á næsta ári og rúmlega 17% vexti. Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 26. júní sl. og er næsta útgáfa fyrirhuguð í febrúar.