Vöruskiptahalli í júní reyndist sá mesti í tvö ár, eða frá því í júní 2019. Halli á vöruskiptum var 30,2 milljarðar króna og skýrist af óvenjumiklum vöruinnflutningi. „Óhagstæð þróun vöruverðs, minni fiskútflutningur og aukin umsvif innanlands mun auka á vöruskiptahallann á næstunni en útlit er þó fyrir að utanríkisviðskipti verði í þokkalegu jafnvægi í ár,“ segir í greiningu Íslandsbanka .
Sjá einnig: Rígur á arabíuskaganum hamlar olíusamningi
Í síðasta mánuði voru fluttar inn vörur fyrir 88,9 milljarða króna, sem er mesti vöruinnflutningur í einum mánuði frá upphafi mælinga. Á föstu gengi hefur innflutningur aðeins mælst meiri í maí árið 2017. Innflutningur eykst því samfara styrkingu hagkerfisins og vonum um að farið sé að sjá fyrir endalok faraldursins.
Útfluttar vörur námu um 58,7 milljörðum króna, sem er svipað og verðmæti útflutnings hefur verið undanfarna mánuði. Sjávarafurðir námu um helmingi vöruútflutnings, eða um 27 milljörðum króna, útflutningur á áli nam 17 milljörðum króna og útflutningur annarra iðnaðarvara um 10 milljörðum.
„Þótt álverð hafi sótt verulega í sig veðrið undanfarið er verðþróun á heimsmarkaði þó almennt fremur óhagstæð fyrir vöruskiptin enn sem komið er. Verð sjávarafurða hefur enn ekki náð fyrri hæðum eftir. Hins vegar hafa hrávörur, matvörur og eldsneyti almennt hækkað verulega í verði síðustu fjórðunga," segir í greiningunni.