Ráðgjafarfyrirtækið Capacent metur gengi bréfa Festar á 130 krónur á hlut í nýlegu verðmati á félaginu. Er félagið metið á 42,7 milljarða króna.

Það er 14% hærra verð en sem nemur markaðsvirði bréfanna við lokun markaða á miðvikudag en þá stóð gengi þeirra í 114 krónum á hlut, sem samsvarar markaðsverðmæti upp á 37,5 milljarða króna. Hækkar ráðgjafafyrirtækið verðmat sitt um 2 krónur á hlut frá síðasta mati sem birt var í október.