Rannsóknaskipið Árni Friðriksson leggur af stað í leiðangurinn „Vistfræði Austurdjúps“ á morgun. Eitt af meginmarkmiðum verkefnisins er að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annarra uppsjávartegunda í Austurdjúpi og á Austur- og Norðausturmiðum. Því til viðbótar er ástand hafsins og vistkerfisins kannað, m.a. hitastig og magn átustofna.

Hafrannsóknastofnun segir frá.

Leiðangurinn er skipulagður af vinnuhóp á vegum Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) en auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar, taka rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og Rússlandi þátt í verkefninu. Áætlað er að leiðangurinn muni taka 20 daga.

Leiðangurinn hefur verið farinn árlega síðan 1995 og gefa niðurstöður hans m.a. eina mikilvægust tímaröð bergmálsmælinga sem notaðar eru við stofnmat og veiðiráðgjöf norsk-íslenska síldarstofnsins innan Alþjóða hafrannsóknaráðsins.