Flugskóli Íslands brautskráði 58 nemendur við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu, miðvikudaginn sl. Um er að ræða stærsta hóp atvinnuflugmanna sem nokkur skóli hefur útskrifað hér á landi. Baldvin Birgisson, skólastjóri Flugskóla Íslands, nefndi það í ræðu sinni að vegna aukinna umsvifa í ferðaþjónustu kallar atvinnulífið á fagmenntaða flugmenn sem aldrei fyrr. Flugskóli Íslands er einn af undirskólum Tækniskólans.

Fjögur fyrirtæki veittu viðurkenningu fyrir bestan heildarárangur í atvinnuflugmannsnámi en það eru fyrirtækin Air Atlanta, Icelandair, Wow Air og Norlandair. Það var Daníel Örn Steinarsson sem hlaut þær viðurkenningar. Einnig hlutu Steinar Andri Einarsson og Snædís Erla Leósdóttir viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Til þess að skera úr um röðun á hæstu einkunn, þurfti að nota tvo aukastafi en sex nemendur skólans voru með 9,7 í lokaeinkunn. Allir þessir sex nemendurnir fengu að launum flugtíma í þotuflughermi skólans.

Nemandi ársins hjá Flugskóla Íslands, valinn af stjórnendum skólans, er Sigurður Ingi Jónsson. Sigurður var valinn fyrir áræðni og elju að ljúka atvinnuflugmannsnámi 58 ára að aldri. Norlandair gefur nemanda ársins gjafabréf.