Icelandair flutti rúmlega 254 þúsund farþega í júlí sl., sem er 22% fjölgun á milli ára. Þá er þetta jafnframt metfjöldi farþega í einum mánuði sem Icelandair hefur flutt frá upphafi.

Heildarfjöldi farþega það sem af er ári nemur tæplega 980 þúsund sem er 21% aukning á milli ára.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í júlí var rúm 85,4% sem er 1% minna en á sama tíma í fyrra. Sætanýtingin fyrstu fimm mánuði ársins nemur 78,5 og hefur aukist um rúm 2% á milli ára.

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 4% á milli ára í júlí þegar félagið flutti tæplega 38 þúsund farþega. Farþegafjöldi félagsins jókst lítillega á milli ára í vor en á sama tíma í fyrra var lítið flogið innanlands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Farþegum Flugfélagsins hefur fjölgað um 3% á milli ára það sem af er þessu ári.

Mikill samdráttur í nýtingu flugflotans

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group dróst verulega saman á milli ára í júlí eða um 15%. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic, sem nýttar eru til leiguverkefna á vegum samstæðunnar.. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári en stendur í stað það sem af er þessu ári.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 17% á milli ára í júlí. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin á fyrstu sjö mánuðum þessa árs nemur 8% á milli ára.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um 7% á milli ára í júlí og hefur þannig aukist um 4% það sem af er ári.

Leiðrétting . Í fyrri útgáfu þessarar fréttar voru farþegatölur hjá Icelandair í júlí rangar. Það hefur nú verið leiðrétt.