Grænlenski sjávarútvegsrisinn, Royal Greenland, skilaði methagnaði á síðasta rekstrarári, eða um 335 milljónum danskra króna fyrir skatt sem gerir tæpa 5,3 milljarðar íslenskra króna.

Fiskifréttir greina frá þessu, en á vef Royal Greenland segir að með yfirtöku á Qin-Sea Fisheries á Nýfundnalandi hafi Royal Greenland styrkt stöðu sína enn frekar í veiðum og vinnslu á kaldsjávarrækju. Auk þess hafi veiðar og vinnsla á snjókrabba bæst við sem stoð undir reksturinn.

Rekstrarárið fært á almanaksárið

Rekstrarárið er óvenjulangt að þessu sinni eða 15 mánuðir þar sem verið var að færa ársuppgjörið yfir á almanaksárið. Í heild námu rekstrartekjur á þessum 15 mánuðum rúmum 7 milljörðum danskra króna, sem gerir um 110 milljarðar íslenskra króna.

Ef aðeins er litið til 12 mánaða til að fá samanburð við síðasta 12 mánaða uppgjör þá jukust tekjur félagsins um 14%. Miðað við sama tíma þá jókst hagnaður um 20 milljónir danskra eða 315 milljónir íslenskra króna.

Tillaga verður lögð fyrir næsta aðalfund félagsins að greiddur verði 100 milljóna danskra króna í arð til eigenda eða tæplega 1,6 milljarður íslenskra króna.