Icelandair flutti 254 þúsund farþega í millilandaflugi í október. Þetta er 19% aukning frá október í fyrra en þá flutti félagið tæplega 213 þúsund farþega. Félagið hefur aldrei flutt fleiri farþega í einum mánuði en mesta aukningin var á ferðamannamarkaðinum til Íslands eða um 31,8%

Sætanýting í október var 83,6%, en var 81,4% árið áður. Sætanýting Icelandair hefur aldrei verið hærri.