Sölumet var sett hjá Toyota á Íslandi í janúar þegar 585 bílar voru afhentir nýjum eigendum.  „Þetta er um 20%  meira en við höfum nokkru sinni selt í janúar til þessa og því má segja að árið byrji mjög skemmtilega hjá okkur“ segir Kristinn G. Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota á Íslandi.

Í tilkynningu vegna þessa segir að ef marka má fjölda heimsókna undanfarna daga í sýningarsali Toyota sem eru á Akureyri, Egilsstöðum Reykjanesbæ, Selfossi og í Kópavogi er áhugi á nýjum bílum mikill í byrjun nýs árs. Útlit er því fyrir að sala verði góð áfram.

Áberandi er hve margir fjórhjóladrifsbílar hafa selst. Í byrjun ársins fóru fyrstu Land Cruiser 200 bílarnir að sjást á götunum, en alls hafa um 150 bílar af þeirri gerð verið afhentir til þessa.

Vinsælir litir

Sem fyrr eru silfurgráir og svartir bílar vinsælastir en nokkuð er áberandi hvað hvíti liturinn er farinn að sækja á.

Vinsælustu litirnir hjá Toyota í janúar 2008:

Silfurgrár                    33%

Svartur                       19%

Ljósbrúnn                   16%

Hvítur                          11%

Dökkgrár                     9%

Blár                              6%

Rauður                         3%

Grænn                          3%