Sænska fjölmiðlafyrirtækið Metro International greindi frá því í dag að félagið mun hefja útgáfu fríblaðs í Mexíkóborg í vor.

Félagið hefur stofnað fyrirtæki í Mexíkó, sem nefnist Publicaciones Metropolitanas og mun hafa umsjón með útgáfunni.

Metro International mun eiga 35% hlut í Publicaciones Metropolitanas. MXSHARES SA mun eiga 35% og Immobiliaria Torraco SA mun eiga 30% hlut.