Suður-kóreski bílaframleiðandinn Kia Motors seldi alls 295.140 bíla í Evrópu á fyrstu níu mánuðum ársins og hefur aldrei selt fleiri bíla á því tímabili í sögu fyrirtækisins.

Kia setti einnig sölumet á þriðja ársfjórðungi og jókst salan þá um 9,7%. Kia seldi í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins meira en 200 þúsund bíla í álfunni á fyrri helmingi ársins en sala á Kia bílum í Evrópu hefur aukist um 8,3% á þessu ári.

Bretland er sem fyrr stærsti markaður Kia í Evrópu og þar á eftir koma Þýskaland og Spánn. Á Íslandi er hlutdeild Kia 9,4% og er það hæsta markaðshludeild Kia í Evrópu. Kia er annað mest selda merkið hér á landi en alls hafa selst 1.088 Kia bílar á fyrstu níu mánuðum ársins hér á landi.