Hagnaður Mezzoforte ehf. nam í fyrra um 740 þúsund krón­um, samanborið við 570 þúsund krónur árið áður. Rekstrar­hagnaður fyrir skatta og fjármagnsliði nam um 350 þúsund krónum, samanborið við tæpar 640 þúsund krónur árið áður.

Mezzoforte ehf. heldur utan um rekstur samnefndrar hljómsveit­ar. Félagið er í eigu þeirra Jóhanns Ásmundssonar,Eyþórs Gunnarssonar, Gunnlaugar Briem og Friðriks Karlssonar sem allir eiga fjórðungshlut í félaginu. Eigið fé félagsins var í árslok um 100 þúsund krónur en skammtímaskuldir þess námu um 3,3 milljónum króna. Handbært fé í árslok nam 1,6 milljónum króna.

Hér má sjá og heyra eitt þekktasta lag Mezzoforte, Garden Party.