Bandaríska viðskiptatímaritið Forbes hefur tekið saman lista yfir tekjuhæstu látnu tónlistarmennina . Listinn er miðaður við tekjuinnstreymi milli októbermánaða 2010 og 2011.

Á toppi listans situr enginn annar en goðsögnin Michael Jackson, en hann kvaddi hið jarðneska líf í júnímánuði árið 2009.

Þetta eru tekjuhæstu látnu tónlistarmennirnir:

1. Michael Jackson - 170 milljónir dala (23,5 milljarðar íslenskra króna)
2. Elvis Presley - 55 milljónir dala (7,6 milljarðar)
3. John Lennon - 12 milljónir dala (1,7 milljarðar)
4. Jimi Hendrix - 7 milljónir dala (968 milljónir)
5. George Harrison - 6 milljónir dala (830 milljónir)