Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, sagði í viðtali fyrir skömmu að fyrirtæki hans hygðist ekki setja á markað vöru til höfuðs iPhone-símanum vinsæla.

Microsoft mun fremur einbeita sér að hugbúnaði sínum, Windows Mobile, þegar að internetsímanum kemur.

Microsoft setti fyrir skemmstu á markað tónlistarspilarann Zune til höfuðs iPodinum vinsæla.

Þetta kemur fram í helgarblaði Viðskiptablaðsins.