Evrugengið 130 mun verða notað í viðskiptum Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning til ársloka. Samningar um það náðust milli Microsoft Íslandi og höfuðstöðva Microsoft fyrir skömmu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Microsoft á Íslandi. Þá kemur fram að Microsoft gengur út frá því í viðskiptum sínum á Íslandi að krónan sé umtalsvert sterkari en hún raunverulega er en raunvirði evru er nú um 179 krónur.

Slíkt fyrirkomulag hefur verið í gildi frá byrjun desember á síðasta ári, en fram til júníloka var miðað við evrugengið 120.

„Nauðsynlegt reyndist að breyta viðmiðunargenginu þar sem væntingar Microsoft um styrkingu íslensku krónunnar hafa engan veginn gengið eftir,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að evrugengi Microsoft hér á landi hafi mælst mjög vel fyrir meðal samstarfsaðila Microsoft Íslandi, en verkefnið kom hugbúnaðarviðskiptum af stað aftur í desember sl. eftir að markaðurinn hafði verið algerlega frosinn í kjölfar bankahrunsins.

„Þegar við fórum af stað með þennan stuðning við íslenskt atvinnulíf á afar erfiðum tímum síðasta vetur stóð evran í u.þ.b. 174 krónum og við gerðum ráð fyrir því að hún myndi fljótlega styrkjast,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi.

„Nú, átta mánuðum síðar, er krónan veikari en við upphaf verkefnisins, sem eru gríðarleg vonbrigði. Við leggjum þó ekki árar í bát og það er ánægjuefni að tekist hafi að semja við höfuðstöðvar Microsoft um að halda fastgengisstefnunni áfram til ársloka. Það er mikilvæg viðspyrna fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir nú þegar krónan er í sögulegu lágmarki.“