Microsoft og Yahoo hafa lagt meira í viðræður sínar í tilraun til að komast að samkomulagi um yfirtöku fyrrnefnda félagsins á Yahoo.
Hlutabréf Yahoo hækkuðu um 6,4% vegna frétta af viðræðunum, en áður höfðu fjárfestar óttast að Microsoft myndi hætta við kaupin eða hefja umboðsbaráttu (e. proxy battle).
Forstjóri Microsoft, Steve Ballmer, sagði á fimmtudag að það að hætta við kaupin væri einn af þremur valmöguleikum Microsoft í stöðunni. Hinir tveir eru annars vegar yfirtaka á vinsamlegum nótum og hins vegar á fjandsamlegum nótum.
Boð Microsoft í Yahoo hefur lækkað að undanförnu, þar sem hluti greiðslunnar felst í hlutum í Microsoft, en félagið hefur lækkað.
New York Times hafði hins vegar eftir ónafngreindum heimildarmanni að Microsoft hefði hækkað tilboð sitt í Yahoo nýlega. Reuters greina frá því að Microsoft neituðu að tjá sig um málið við þá og að ekki náðist í forsvarsmenn Yahoo.