Mid-Atlantic ferðakaupstefnan er haldinn í dag í sextánda skipti í Laugardalshöll. Mid-Atlantic er árleg ferðakaupstefna sem haldin er og skipulögð af Icelandair og er eingöngu opin boðsgestum. Í ár taka um 300 fyrirtæki, frá öllum helstu mörkuðum Icelandair þátt í Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni.

Tilgangur ferðakaupstefnunnar er að auka á tengsl ferðaþjónustuaðila á þeim mörkuðum sem Icelandair þjónar, bæði austan hafs og vestan, en ekki hvað síst hér á Íslandi. Hingað heim koma því bæði seljendur og kaupendur ferðaþjónustu.