Miðasala hófst í gær á Reykjavík Fashion Festival sem haldin verður 27. til 30. mars næstkomandi. Sýning verður á hönnun átta íslenskra fatamerkja í Silfurbergi í Hörpu þann 29. mars. Þau eru JÖR, REY, ELLA, Farmers Market, magnea, ziska, Sigga Maija og Cintamani.

Í fréttatilkynningu frá hátíðinni segir að margir erlendir fjölmiðlar hafi þegar boðað komu sína á hátíðina. Þar á meðal Vogue Germany, Vogue Italia, ELLE Norway, Nowfashion.com og Euroman.