Miðasala á leik Íslands og Króatíu í umspili um sæti í úrslitakeppni HM í Brasilíu á næsta ári hefst á morgun og fer fram á vefsíðunni midi.is.  Miðaverð verður óbreytt frá síðustu leikjum, ódýrustu miðar kosta 1500 krónur og dýrustu 3500.  Leikurinn fer fram þann 15. nóvember næstkomandi.

Á vefsíðu KSÍ segir að stemningin hafi verið frábær á síðastu heimaleikjum og engin spurning að stuðningur áhorfenda hafi haft gríðarlega mikið að segja.