Flugfélagið Play hóf sölu farmiða snemma í morgun en aðsókn mun hafa verið mikil á vefsíðu flugfélagsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Félagið tilkynnti um helgina að flugrekstrarleyfi væri í höfn.

Fyrstu sjö áfangastaðir Play verða Alicante, Barcelona, Berlín, Kaupmannahöfn, Lundúnir, París og Tenerife en núverandi flugáætlun gildir út apríl 2022. Fyrsta flug félagsins verður til London Stansted þann 24. júní næstkomandi.

Félagið, sem er að verða tveggja ára gamalt, efndi gamalt loforð til þeirra sem höfðu skráð sig á póstlista Play en þeim var gefið forskot á sæluna og fengu fyrstir tækifæri til að næla sér í þau þúsund fríu flugsæti sem eru falin á heimasíðu félagsins. Fram kemur í tilkynningunni að enn sé möguleiki á að bóka frítt flugsæti en að áhugasamir þurfi að hafa hraðar hendur til þess að ganga frá bókun.

„Við erum auðvitað alsæl með að sala sé loksins hafin. Viðtökur hafa verið mjög góðar og við erum ánægð með þennan áhuga sem Íslendingar sýna nýju flugfélagi. Það má alltaf fagna samkeppni á íslenskum markaði," segir Birgir Jónsson, forstjóri Play í tilkynningunni.

Í tilkynningunni kemur fram að Play býður upp á sveigjanlega skilmála vegna COVID-19 þar sem aðstæður geta skiljanlega breyst og það getur verið stressandi að skipuleggja ferðalög í heimsfaraldri. Með sérstökum sveigjanlegum skilmálum er reynt að tryggja eftir fremsta megni að ferðaupplifunin sé góð og að fólk geti bókað áhyggjulaust flug í fríið.