Miðengi ehf., eignarhaldsfélag Íslandsbanka, hefur eignast 62,9% í eignarhaldsfélaginu BLIH ehf. sem fer með allt hlutafé í Ingvari Helgasyni ehf. og Bifreiðum og landbúnaðarvélum ehf.  Aðrir hluthafar eru SP-Fjármögnun hf. með 18,6% eignarhlut og Lýsing hf. með 18,5% eignarhlut.  Breytingin á eignarhaldi kemur til í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar en sú vinna hefur staðið yfir undanfarna mánuði.    Nú starfa um 125 manns hjá félögunum tveimur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðengi.

„Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær eignarhluturinn verður settur í söluferli.

Félögin tvö eru með mörg af þekktustu bílaumboðunum hér á landi; BMW, Hyundai, Isuzu, Land Rover, Nissan, Opel,  Renault og Subaru.

Forstjóri er Arnar Bjarnason.

Stjórn Eignarhaldsfélagins BLIH ehf. skipa:

Hanna Katrín Friðriksson

Björn Víglundsson

Karl Þorsteins

Magnús Scheving Thorsteinsson

Hjörtur Nielsen“