Í mars á þessu ári var félagið svo selt samkvæmt kaupsamningi milli 365 miðla hf. og Fjarskipta hf., en 365 miðlar áttu í lok síðasta árs allt hlutafé í félaginu. Sala dróst saman milli áranna 2015 og 2016. Í fyrra var sala félagsins rúmar 26 milljónir en rúmar 65 milljónir árið áður. Rekstrarkostnaður dróst einnig saman milli ára úr rúmum 74 milljónum í tæpar 57 milljónir. Tap félagsins jókst milli ára úr tæpum 8 milljónum í tæpar 31 milljón.