Mikið fjör er nú hlaupið í krónubréfaútgáfu, segir greiningardeild Glitnis, enda stórir gjalddagar krónubréfa framundan og því von á mikilli spurn eftir nýjum bréfum ef fjárfestar hyggjast viðhalda fjárfestingu sinni í íslenskum vöxtum.

Tilkynnt var um tvær útgáfur í dag. Þýski KfW er að gefa út bréf að nafnvirði fimm milljörðum króna, með gjalddaga í mars 2009, og Eurofima, fjármögnunarsjóður evrópskra járnbrautafélaga, gefur út bréf að nafnvirði fjögurra milljarða króna með gjalddaga í nóvember 2008.

?TD Securities eru umsjónaraðilar beggja útgáfa dagsins, en þeir hafa verið atkvæðamiklir í útgáfu slíkra skuldabréfa, bæði í íslenskri krónu og öðrum hávaxtamyntum,? segir greiningardeildin.

Í gær tilkynnti Alþjóðabankinn um þriggja milljarða króna útgáfu með gjalddaga í maí 2009.

Næstu dagar munu skera úr um fjárfestingu útlendinga í krónubréfum

?Næstu dagar munu skera úr um hvort veruleg breyting verður á fjárfestingu útlendinga í krónubréfum í kjölfar gjalddaganna í september. Nokkurn tíma tekur að ganga frá þeim útgáfum sem tilkynntar eru á hverjum tíma, og því líklegt að vilji menn gefa út krónubréf sem duga til framlengingar á næstu gjalddögum verði þau bréf að líta dagsins ljós í þessari viku eða hinni næstu.

Sú þróun mun svo aftur ráðast af áhættusækni þeirra erlendu fjárfesta sem keypt hafa krónubréf undanfarin misseri. Reynsla annarra landa hefur sýnt að fjárfestar í slíkum skuldabréfum eru öllu þolinmóðari þegar á móti blæs en aðrir fjárfestar sem stunda vaxtamunarviðskipti,? segir greiningardeildin.

Krónubréfaútgáfa í ágúst orðin 55 milljarðar króna

?Krónubréfaútgáfa í ágúst er nú orðin 55 milljarðar króna, að frádreginni 25 milljarða króna útgáfu Rabobank þar sem Landsbanki var umsjónaraðili og við teljum að haldið sé af innlendum aðilum hafa nú verið gefin út bréf að andvirði 30 milljarðar króna sem gengið geta til framlengingar á þeim bréfum sem eru á gjalddaga í september,? segir greiningardeildin.

Hún segir að raunar voru sjö milljarða króna á gjalddaga í ágúst, en á móti kemur að útgáfa í júlí var töluverð. ?Bréf á gjalddaga í september nema alls 82,5 milljörðum króna að nafnvirði, og því er ljóst að enn vantar töluvert upp á að framboð nýrra krónubréfa nægi til að framlengja krónubréfastöðu þeirra sem eiga bréf á gjalddaga í næsta mánuði,? segir greiningardeildin.