Umfang gistirýmis án starfsleyfa á höfuðborgarsvæðinu er 1238 rúm og á Akureyri eru 577 rúm án starfsleyfa, samkvæmt úttekt Samtaka ferðaþjónustunnar. Samtökin skoðuðu hótel, gistiheimili, íbúðir og heimagistingu þar sem leigt er til skamms tíma til ferðamanna. Slíkir staðir þurfa starfsleyfi samkvæmt lögum. Fyrst og fremst var leitað á vefnum, þar á meðal á alþjóðlegum bókanavefjum.

Rúm án starfsleyfa á höfuðborgarsvæðinu eru 15,3% af heild. Á Akureyri er hlutfallið 29,8%, samkvæmt úttekt SAF.

„Það er mikilvægt að ljóst sé á hverjum tíma hvert framboð gistirýmis sé en grunur hefur leikið á að mikið sé um gististaði án starfsleyfa.  Þar sem þessar upplýsingar eru hvergi til staðar hjá opinberum stofnunum var ákveðið að fara í þessa vinnu.  Ástæða hennar er þríþætt; vegna samkeppnismála, öryggismála og nauðsyn réttra hagtalna,“ segir í fréttatilkynningu SAF.

„Samkvæmt frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um gistináttagjald á að greiða gjald á hverja gistinótt.  Stjórnendur í gistirekstri spyrja stjórnvöld hvernig þau hyggist innheimta gjaldið af sanngirni ef svo stór hluti gistimarkaðarins kemst upp með að starfa án allra starfsleyfa.“