9,2 milljarða króna velta var á viðskiptum í Kauphöllinni í dag. 8 milljarða velta var á viðskiptum með skuldabréf og um 1,13 milljarða velta var á viðskiptum á Aðalmarkaði með hlutabréf.

Gengi flestra félaga á Aðalmarkaði lækkaði í dag. Mest hækkaði gengi bréfa í fasteignafélaginu Reginn eða um 0,53% en mesta lækkun var á gengi bréfa í Marel, um 1,64%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,79% og var lokagildi hennar í loka dags 1.373,37.