Mikil aukning varð í veltu raftækjaverslana í desember frá síðasta ári hvort sem mælt er á breytilegu eða á föstu verðlagi. Leita þarf aftur til mars 2008 til að finna jafn mikla veltu að raunvirði í raftækjaverslun.

Sala á raftækjum í desember jókst um 15,3% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 34% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 16,2% frá desember 2008.

Þetta kemur fram í mánaðarlegri smásöluvísitölur Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst en velta í dagvöruverslun jókst um 1,7% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð árið áður og jókst um 9,6% á breytilegu verðlagi.

Skýrsluhöfundar segja athyglisvert að aukning varð í veltu dagvöruverslunar í desember síðastliðnum frá sama mánuði ári áður. Hér er um raunaukningu að ræða á milli ára því þegar bæði hefur verið tekið tillit til verðlagsbreytinga á tímabilinu og leiðrétt fyrir daga- og árstíðabundnum þáttum nam veltuaukningin 3,1% en slík aukning á milli ára hefur ekki orðið síðan um mitt ár 2008. Þó beri að hafa í huga í þessum samanburði að jólaverslun í fyrra dróst mikið saman frá fyrri árum.

Í skýrslunni kemur fram að jólaverslun með föt dróst hins vegar saman bæði í nóvember og desember frá sama tímabili í fyrra á föstu verðlagi en skóverslun jókst báða þessa mánuði.

„Greinilegt er að landsmenn hafa dregið úr fatakaupum á síðustu tveimur árum því velta faraverslunar var 26,3% meiri í desember 2007 en í desember síðastliðnum,“ segir í skýrslunni. Skóverslun í desember 2007 var 21,1% meiri en í desember síðastliðnum, mælt á föstu verðlagi.

Þá segja skýrsluhöfundar að mikill samdráttur hafi verið í sölu húsgagna allt frá ágúst 2008. Enn hafi húsgagnaverslun ekki náð sér á strik þó hún hafi aukist nokkuð í desember síðastliðnum frá mánuðinum á undan.

„Svo virðist sem jólaverslun hafi verið heldur meiri en spár Rannsóknaseturs verslunarinnar gerðu ráð fyrir, en þar var gert ráð fyrir því að jólaverslun yrði óbreytt á föstu verðlagi frá árinu áður,“ segir í skýrslunni.

„Of fljótt er þó um það að segja því mælingar Rannsóknasetursins ná ekki til allrar verslunar í landinu. Vísbendingar eru um að meira jafnvægi sé að komast á einkaneyslu eftir samdráttarskeið sem hefur staðið í meira en ár. Kaupmáttur mældist samt 7,6% minni fyrstu ellefu mánuði síðasta árs en á sama tímabili árið áður og raunlækkun varð á greiðslukortanotkun innanlands um16%.“

Sjá skýrsluna í heild sinni.