Í nýrri skýrslu um tengimöguleika flugvalla, sem ACI (Airports Council International - Alþjóðasamtökum flugvalla) sendu frá sér í dag, er Keflavíkurflugvöllur meðal þeirra flugvalla þar sem mest aukning hefur orðið í tengimöguleikum frá árinu 2008. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Isavia.

Skýrslan byggir á tölfræði og greiningum frá SEO Amsterdam Economics í Hollandi. Umfang og gæði tenginganna var metið á grundvelli þriggja mælikvarða: beinum tengingum, óbeinum tengingum og tengimöguleikum safnvallar.

Það er mat ACI í skýrslunni að Keflavíkurflugvöllur sé orðinn mikilvægur þátttakandi á alþjóðavísu þegar kemur að tengingum þvert yfir Atlantshafið og möguleikunum fyrir miðstöð flugs milli heimsálfa.

ACI flokkar flugvelli eftir stærð og Keflavíkurflugvöllur í hópi með flugvöllum með 5-10 milljónir farþega á ársgrundvelli. Á síðustu fimm árum hefur beinum tengingum fjölgað um 132,1% og trónir Keflavíkurflugvöllur því á toppnum í þessum flokki. Ef horft er á síðasta áratug hefur aukningin verið tæp 270% og þar er Keflavíkurflugvöllur einnig á toppnum í sínum flokki.

Þá kemur fram í skýrslu ACI að tengimöguleikar Keflavíkurflugvallar sem safnvallar hafi aukist um 1541% síðan 2008.

Samkvæmt tilkynningunni hafa tengiflugvellir geysilega jákvæð áhrif á samfélag sitt bæði hvað varðar efnahagsleg áhrif þar sem greiðari leið opnast fyrir fyrirtæki að flytja vörur á nýja erlenda markaði. Þá eykst úrval áfangastaða fyrir almenning. Fram kemur í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Intervistas vann fyrir ACI Europe, hefur fjölgun flugtenginga jákvæð áhrif á þjóðarframleiðslu. Samkvæmt skýrslunni eykst landsframleiðsla um 0,5% þegar flugtengingar aukast um 10%.

„Ég vil þakka starfsfólki Keflavíkurflugvallar sem og starfsmönnum Isavia í heild fyrir frábært starf í krefjandi umhverfi síðastliðin ár,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia í tilkynningunni. „Það góða starf sem hefur verið unnið til að koma okkur á þennan stað hefur svo sannarlega skilað sér í auknum tengimöguleikum og opnað nýjar gáttir út í heiminn fyrir almenning og fyrirtæki á Íslandi. Mikilvægt er að uppbygging Keflavíkurflugvallar geti haldið áfram þannig að enn fleiri tækifæri til tenginga verið nýtt á komandi árum.“