Flugferðunum frá Gatwick Londaon til Keflavíkurflugvallar fækkað verulega og á fyrri helmingi ársins flugu 87 þúsund færri farþegar leiðina en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á fréttavefnum turisti.is . Þar segir jafnframt að flestir farþegar frá Bretlandi komi ekki lengur frá Gatwick eins og í fyrra heldur sé Heathrow á ný orðin sú breska flugstöð sem flestir nýta til að fljúga til Íslands.

Samtals flugu 175 þúsund farþegar frá Heathrow á fyrstu sex mánuðum ársins en rétt um 150 þúsund frá Gatwick. Hafa beri í huga að stór hluti þeirra sem nýta sér ferðir Icelandair frá Bretlandi séu farþegar sem aðeins millilenda hér á landi á leið sinni milli Bretlands og Norður-Ameríku.

„Allt frá stofnun þá flugu þotur WOW air til Gatwick og þó flugfélagið hefði komist í gegnum síðasta vetur þá var samdrátturinn á Gatwick fyrirsjáanlegur. WOW air hafði nefnilega selt afgreiðslutíma sína á þeim flugvelli og ætlaði að færa Lundúnarflugið yfir á Stansted. WOW air hafði líka skorið niður flug frá Edinborg en þaðan hefur farþegum í ár fækkað um helming sem gæti opnað dyr fyrir Icelandair í borginni.

Til viðbótar við fall WOW air þá hafa bæði easyJet og British Airways skorið niður eða boðað færri flugferðir milli Íslands og Bretlands. Á sama tíma hættu stjórnendur Wizz Air við að fljúga hingað daglega frá Luton í vetur og láta í staðinn fimm ferðir í viku duga. En Luton flugvöllur er engu að síður í mikilli sókn þegar kemur að Íslandsflugi því þaðan komu 42 prósent fleiri farþegar til landsins á fyrri hluta ársins en á sama tíma í fyrra samkvæmt upplýsingum frá breskum flugmálayfirvöldum,” segir í frétt túrista.is.