Alls var 500 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í október sl., sem er tæplega 36% fækkun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þannig fækkað um 10% á milli ára.

Þá var 830 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í október sem þýðir fækkun samninga um tæp 44% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Samningum hefur þannig fækkað verulega frá því í ágúst og september en eru nú á svipuðu róli og verið hefur á fyrri hluta ársins. Fjöldi leigusamninga náði hámarki í september í fyrra þegar rúmlega 1.550 samningum var þinglýst.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur þegar líður á veturinn.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 830 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í október sl., samanborið við 1.469 samninga í september. Samningum í október fækkar um 1% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnejsum eða 120 samningum. Þá var 89 samningum þinglýst á Norðurlandi, 57 samningum á Suðurlandi og 47 samningum á Vesturlandi.

Þá var 9 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 7 samningum þinglýst á Austurlandi.

Frá áramótum hefur um 8.760 leigusamningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af um 5.550 á höfuðborgarsvæðinu.