Alls var 537 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í október sl., sem tæplega 13% fækkun á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fjölgað um 7,4% á milli ára.

Þá var 880 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í október sem þýðir fækkun samninga um 23,4% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Samningum á landinu öllu hefur þó fjölgað um 6% á milli ára.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum hefur fækkað jafnt og þétt frá því að fjöldi þeirra náði hámarki haustið 2010. Líkt síðustu ár tók fjöldi leigusamninga kipp upp á við í vor en ekkert í námunda við það sem var fyrir ár.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 115 samningum. Þá var 78 samningum þinglýst á Norðurlandi, 70 samningum á Vesturlandi og 62 samningum á Suðurlandi.

Loks var 13 samningum þinglýst á Austurlandi og 4 samningum á Vestfjörðum.

Á síðasta ári var um 9.950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010. Það sem af er þessu ári hefur tæplega 8.000 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af um 5.000 samningum á höfuðborgarsvæðinu.

© vb.is (vb.is)