Icelandair flutti tæplega 94 þúsund farþega í febrúar sl., sem er 18% fjölgun á milli ára í febrúarmánuði. Framboð félagsins í mánuðinum jókst um 11% á milli ára.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í fyrra nam tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Farþegafjöldi félagsins jókst þannig um 18% á milli ára  fyrra.

Sætanýting Icelandair í febrúar var um 75% og jókst um 4,2% á milli ára. Sætanýtingin á síðasta ári var um 79% og jókst um 1% á milli ára. Það var jafnframt besta sætanýtingin í sögu félagsins.

Mikil aukning í fraktflugi

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 7% á milli ára í febrúar en félagið flutti um 26.900 farþega í mánuðinum. Framboð félagsins jókst um 6% á milli ára í febrúar. Sætanýtingin nam um 71% og dróst saman um hálft prósent.

Flugfélag Íslands flutti um 353 þúsund farþega á síðasta ári sem þýðir 3% fjölgun farþega á milli ára. Þá hefur farþegum félagsins fjölgað um 3% það sem af er þessu ári.

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group dróst saman um rúm 1,6% á milli ára í febrúar. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic, sem nýttar eru til leiguverkefna á vegum samstæðunnar. Nýting flugflotans dróst saman um 1% á milli ára á síðasta ári, líkt og árið áður, og hefur dregist saman um 6,4% það sem af er þessu ári.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 25% á milli ára í febrúar. Þá nemur aukning í fraktflugi Icelandair Cargo um 23% það sem af er þessu ári en framboð félagsins hefur aukist um 14%.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um 15,5% á milli ára í febrúar. Nýting hótelherbergja samstæðunnar á síðasta ári jókst um tæp 2% á milli ára. Framboð hótelherbergja á vegum samstæðunnar jókst um 16% á milli ára í febrúar.