Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 28% í maímánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr rúmlega 105 þúsund farþegum árið 2003 í rúmlega 134 þúsund farþega nú. Fjölgun farþega til og frá Íslandi nemur tæplega 26% milli ára. Farþegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fjölgar þó hlutfallslega enn meira eða um 37%.

Alls hefur farþegum um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um rúmlega 22% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2003, eða úr rúmlega 423 þúsund farþegum í tæplega 517 þúsund farþega.