71% af launagreiðendum voru með færri en 5 launþega. 12% af launagreiðendum voru með 5 til 9 launþega og um 13% með 10 til 49 launþega. Þetta kemur fram í gögnum Hagstofunnar um launagreiðendur á Íslandi. Á síðastliðnu ári, frá september 2015 til ágúst 2016, voru að jafnaði 16.386 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 3,7% frá seinustu tólf mánuðum á undan.

Frá september 2015 til ágúst 2016 greiddu launagreiðendur að meðaltali um 177 þúsund einstaklingum laun sem er aukning um 4,4% samanborið við síðustu tólf mánuði á undan.

Mest fjölgun í ferðaþjónustu og byggingariðnaði

Eins og við mátti búast þá fjölgaði launþegum mikil milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og í byggingariðnaði. Launþegum fækkaði hins vegar í greinum tengdum sjávarútvegi, fræðslustarfsemi og opinberri stjórnsýslu.

Í ágúst voru 27.600 launþegar hjá launagreiðendum í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði þeim fjölgað um 3.800 eða um 16% samanborið við ágúst 2015. Launþegum í byggingarstarfsemi hefur á sama tíma fjölgað um 15%.

„Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin,“ er þó tekið fram í frétt Hagstofunnar.