Alls var 577 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í janúar sl., sem þýðir rúmlega 40% fjölgun samninga á milli mánaða en samningum hafði þó fækkað verulega í desember sl.

Þá var 884 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í janúar sem þýðir fjölgun samninga um tæp 49% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hafði leitað töluvert niður á við frá því í september sl. en þetta er í fyrsta sinn í fjóra mánuði sem samningum fjölgar á milli mánaða. Í september sl. var slegið met í fjölda leigusamninga þegar 1.553 samningum var þinglýst á landinu öllu, þarf af 868 á höfuðborgarsvæðinu.

© vb.is (vb.is)


Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur seinna um haustið.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 884 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í janúar sl., samanborið við 594 samninga í desember. Samningum fækkar þó um 1,6% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Norðurlandi eða 104 samningum. Þá var 81 samningi þinglýst á Suðurnesjum, 64 samningum á Vesturlandi og 43 samningum á Suðurlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 7 samningum var þinglýst þar í janúar. Þá var 8 samningum þinglýst á Austurlandi.