Fimmtán manns létust í jafnmörgum umferðarslysum á nýliðnu ári eða rúmlega helmingi færri en árið á undan, en þá lést 31. Á vef umferðastofu segir að um hafi verið að ræða 13 ökumenn bíla eða bifhjóla, 1 farþega og einn gangandi vegfaranda. 12 karlar, 2 konur og eitt barn létust. Á árinu 2006 létust 20 karlar og 11 konur. Í þremur tilvikum var um bifhjólaslys að ræða og jafnoft létust erlendir vegfarendur. Nær helmingur látinna óku útaf vegi, 7 létust í árekstrum og í einu tilviki var ekið á gangandi vegfaranda. 14 slysanna urðu í dreifbýli og eitt í þéttbýli. Að mati forráðamanna Umferðarstofu skýrist fækkun banaslysa af markvissari vinnubrögðum og góðri samvinnu allra aðila sem að umferðaröryggisstarfinu koma. Jafnframt vandaðri framkvæmd umferðaröryggisáætlunar stjórnvalda, undir stjórn samgönguráðuneytisins, Umferðarstofu, Vegagerðarinnar og embættis ríkislögreglustjóra. Markviss nýting upplýsinga um slysastaði úr slysaskráningu Umferðarstofu hefur leitt til ákvörðunar áhersluatriða bæði í eftirliti lögreglu og greiningu og lagfæringu ,,svartbletta”, sem eru þeir staðir á umferðarkerfinu þar sem flest slys eiga sér stað.