Alls var 412 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í desember sl., sem þýðir rúmlega 19% fækkun samninga á milli mánaða. Þá var 6.853 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári, samanborið við 6.906 samninga árið 2009.

Þá fækkaði leigusamningum jafnframt á landinu öllu um 21,3% á milli mánaða í desember samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað töluvert niður á við eftir því sem liðið hefur á haustið eftir nokkra fjölgun í sumar. Svipuð þróun átti sér stað á sama tíma í fyrra þó fjöldi leigusamninga síðla sumars þá hafi ekki verið jafn mikill og nú í sumar. Í september sl. var slegið met í fjölda leigusamninga þegar 1.553 samningum var þinglýst á landinu öllu, þarf af 868 á höfuðborgarsvæðinu.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur seinna um haustið.

Ef horft er á landið í heild þá var 594 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í desember sl., samanborið við 755 samninga í október. Þannig fækkað samningum sem fyrr segir um 21,3% á milli mánaða á landinu öllu en fjölgar þó um 0,5% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í desember, eða 59 samningum (1.175 samningum á árinu 2010). Þá var 42 samningum þinglýst á Norðurlandi (1.095 á árinu), 35 á Suðurlandi (542 á árinu) og 31 samningi á Vesturlandi (509 á árinu).

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 6samningum var þinglýst þar í desember. Þá var aðeins 70 leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum á síðasta ári.