Bandarísk hlutabréf hækkuðu mikið síðustu klukkustundina fyrir lokun markaða í kvöld. Var þessu öfugt farið í gærkvöldi, þegar hlutbréfin lækkuðu mikið rétt fyrir lokun.

Dow Jones vísitalan hækkaði um 4% í dag, S&P um 3,9% og Nasdaq um 4,2%.

Þrátt fyrir hækkanirnar segja verðbréfamiðlarar enn hafa áhyggjur af stöðunni í Kína. Þetta kemur fram á vef Wall Street Journal.