FL Group hefur hækkað um rúm 6% það sem af er degi í hálfs milljarðs króna viðskiptum. Síðasta gengi er 20,8. Félagið hefur hækkað um tæp 20% frá því á mánudaginn í síðustu viku. Á síðustu tveimur mánuðum hefur félagið hækkað um helming.

Bréf félagsins eru orðin mun hærri en síðustu verðmöt viðskiptabankanna á félaginu. Verðmat Íslandsbanka frá því um miðjan september hljóðar upp á verðmatsgengið 13,9 og verðmat Landsbankans frá því í byrjun október hljóðar upp á 14,5. Sé tekið meðaltal af þessum verðmötum tveimur er gengi félagsins því á tæplega 50% yfirverði.