Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur hækkað um 111 stig í dag, eða 1,96%. Mest hefur gengi bréfa í FL Group hækkað, eða um 4,64%. Bréf í Íslandsbanka hafa hækkað í verði um 3,33%, Straumi-Burðarási um 3,11%, Actavis um 2,59% og Atorku um 2,34%.