Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,35% í dag, en frá áramótum hefur vísitalan hækkað alla daga utan þess fyrsta. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 4,8% frá áramótum. Hástökkvarinn er Flugleiðir en bréfin hafa hækkað um 23,9% frá áramótum, en á síðasta ári hækkuðu bréfin um 63%.

Mikil viðskipti hafa verið undanfarna daga með hlutabréf Íslandsbanka, en undanfarna tvo daga hafa viðskipti numið rúmum þremur milljörðum.

Byggt á Hálffimm fréttum KB banka.