Gengi allra bréfa í Kauphöll Nasdaq Iceland fer lækkandi í dag, en við skrif fréttarinnar hefur Úrvalsvísitalan lækkað um 1,20%.

Gengi bréfa Icelandair hefur þá lækkað einna mest, eða um 2,04% í 300 milljóna króna viðskiptum. Einnig hefur gengi bréfa Marel lækkað um 1,54% í 326 milljóna króna viðskiptum.

Gengi bréfa TM og VÍS hefur þá einnig lækkað, eða um 2,60% og 2,36% en aðeins í 130 milljóna króna viðskiptum samtals, þar sem velta með bréf TM  hefur verið eilítið meiri.